Fréttir og greinar

18.3.2010 : Áhrif atvinnuþátttöku eldra fólks á heilsu og lífsgæði

Á síðustu áratugum hafa lífslíkur fólks á Norðurlöndum aukist en fæðingartíðni aftur á móti lækkað. Aldursskipting samfélagsins er að breytast og fyrirséð er að á komandi árum munu sífellt fleiri einstaklingar standa undir þjóðarframleiðslunni og velferðarkerfinu að óbreyttu. Jafnframt hafa eldri borgarar margir hverjir brennandi áhuga á að taka virkan þátt í þjóðfélaginu.

Lesa meira
 

8.1.2010 : Af eldra fólki í lífi og starfi

Í ársriti um fullorðinsfræðslu og starfsmenntun - GÁTT er að finna grein sem tengist málefnum eldra fólks á vinnumarkaði. Greinin er eftir Bernharð Guðmundsson fyrrverandi    fræðslustjóra Þjóðkirkjunnar og rektor Skálholtsskóla.  Lesa meira
 
Formaður verkefnisstjórnar, Gunnar Kristjánsson, afhendir félags- og tryggingamálaráðherra eintak af skýrslunni

3.12.2009 : Verkefnisstjórn 50+ lýkur störfum

Verkefnisstjórn 50+ skipuð af félagsmálaráðherra til 5 ára árið 2005 lauk formlega störfum í dag.

Lesa meira
 

Fleiri fréttir...


Um verkefnið

Verkefnisstjórn sem ætlað er að stýra fimm ára verkefni sem hefur það meginmarkmið að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði, var skipuð í apríl 2005.

Vinnumálastofnun

Áhugavert efni

Nefnd um stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði

Hlutverk nefndarinnar var að fjalla um stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði og koma með tillögur hvernig styrkja mætti stöðu þeirra og með hvaða hætti opinberir aðilar geti brugðist við.

Skjal fyrir Acrobat ReaderStaða miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði